Ráðgátan
Sjúkratilfelli. Vísbendingar. Mismunagreiningar. 🔎 RÁÐGÁTAN er nýtt hlaðvarp frá SPOR um klíníska rökleiðslu. Í hverjum þætti glíma þrír læknar við óþekkt sjúkratilfelli, byggja upp mismunagreiningu og reyna að komast á sporið og leysa ráðgátuna – skref fyrir skref. 🎙️ Þáttastjórnendur eru Berglind Bergmann , sérnámslæknir í lyflækningum, Teitur Ari Theodórsson , sérnámslæknir í lyflækningum, og Hildur Jónsdóttir , lyflæknir og kennslustjóri sérnáms í lyflækningum. Með þeim í hverjum þætti er gestalæknir sem annaðhvort tekur þátt í að leysa tilfellið eða leggur fyrir hina ráðgátuna. RÁÐGÁTAN – hlaðvarp frá SPOR









